Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
3.10.2010 | 08:58
213 manns eru ánægðir með þessa frétt
Samkvæmt talningu mbl eru 213 manns ánægðir með þessa frétt.
Skyldu þetta allt vera auðmenn, eða gæti það verið rétt hjá Þránni að fólk eru fífl.
![]() |
Auðmenn græða á uppboðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.10.2010 | 12:40
fyrverandi forseti Alþingis, ósáttur
Þá hefur gamli heiðursmaðurinn Ólafur G Einarsson lýst skoðun sinni á þeirri aðför sem kommarnir höfðu í frammi við Geir Haarde.
Ég var að velta því fyrir mér hvort krata kellingin Guðrún Helgadóttir fyrrverandi forseti Alþingis hafi mætt og hvort þingið hafi kannski aftur þurft að fjárfesta í kjól fyrir hana.
![]() |
„Þar með var niðurlæging Alþingis fullkomnuð“ |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.10.2010 | 04:45
það munar um mig
yngsta barnið mitt verður 18 ára í nóvember, þannig að ég fæ ekki oftar barnabætur.
Þetta vissi ég reyndar en hitt vissi ég ekki að ríkið myndi spara um 900 milljónir á því.
Hinsvegar hafa þessar bætur verið dálítið stopular. Fyrstu árin vann ég mikið og hafði góðar tekjur sem svo urðu til þess að við hjónin misstum barnabæturnar.
Þegar tekjurnar lækkuðu fórum við að sjá bætur aftur, en þá dundi ógæfan á okkur, ég veiktist alvarlega hafði í langan tíma engar tekjur og fékk á mig gjaldþrota úrskurð.
Vegna slælegra vinnubragða skiptastjóra dróst á langinn að gera upp búið og var ég þá að boði sýslumanns sviptur bótum í 4 ár vegna þess að ég væri ekki fjár míns ráðandi og bætur sendar skiptaráðanda.
Miðað við framansagt þá held ég að þetta sé misreiknað hjá Skattgrími.
![]() |
Barnabætur lækkaðar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.10.2010 | 18:02
Skál..........
![]() |
Lífi annarra stefnt í hættu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.10.2010 | 17:59
meira að segja bestwisserinn veit ekkert lengur
Ólína hefur allatíð gefið sig út fyrir að hafa lausnir á öllum vanda og talið sínar skoðanir vera þær einu réttu.
Nú bregður svo við að hún veit ekki hvað veldur óróa hjá fólki.
Gæti verið að eindreginn ásetningur hennar að hengja Sjálfstæðisþingmenn en hvítþvo Samfylkingarþingmenn geti verið kornið sem fyllti mælinn.
![]() |
Verðum að standa saman sem þjóð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.10.2010 | 17:51
höggvið í sama knérunn
Enn einu sinni hefur ríkisstjórnin ekkert annað til málanna að leggja en hækkun skatta.
Í þenslu á að hækka skatta segir Steingrímur og í kreppu á að hækka skatta. Það er von að fólk spyrji hvenær á ekki að hækka skatta ?
Eina sem þessi ríkisstjórn hefur fram að leggja eru auknar skattbyrgðar á fólkið, niðurskurður og uppsagnir.
Það er greinilegt að Jóhanna og Steingrímur hafa ekkert til málanna að leggja.
![]() |
Hækkun skatta skilar 11 milljörðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.10.2010 | 17:45
Gömlu íhaldsráðin
Það er greinilegt að ríkisstjórnin stendur ráðþrota gagnvart vandanum og er nú að leita í kistur Guðlaugs Þórs.
Til hvers var verið að skipta um ríkisstjórn og hversvegna var verið að kjósa og hversvegna hefur ekkert verið aðhafst í 500 daga, efa gömlu íhaldsráðin eru það eina sem dugar
![]() |
Segja þarf upp 40-50 á St. Jósefsspítala |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.10.2010 | 15:58
Bankar verða fyrir áhlaupi.
Þetta er bara byrjunin.
Fólk er langþreytt á athafnaleysi ríkisstjórnarinnar. En er þetta rétta leiðin að réttlæti.
Eða er þetta skrílslæti.
![]() |
Réðist inn í Landsbankann |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.10.2010 | 14:40
Skríll
En og aftur sýna atvinnumótmælendur af sér skrílslæti. Það þykir vissulega safaríkt frétta efni að sýna skrílinn samankominn undir rauðum fánum anarkista og syngja Maístjörnu Halldórs Laxness.
En er þetta árangursríkt og lagar þetta stöðu heimilanna í landinu.
Fyrri mótmæli þessa skríls hefur ekki sýnt það. Er nema von að forsetafrúin gráti yfir þjóðinni.
![]() |
Eggjum rigndi yfir þingmenn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.10.2010 | 10:13
Vanhæf ríkisstjórn...
... var kjörorð byltingarsinna fyrir tveimur árum.
Ríkisstjórnin var hrakinn frá völdum með bolabrögðum og svikum, og fékk ekki tóm til að bregðast við hruninu og bjarga því sem bjarga þyrfti.
Eftir 100 erfiða daga, hafði þó tekist að bjarga nauðþurftum, þrátt fyrir mikið álag á ríkisstjórnina og stöðugan óróa og ófrið.
Núna 500 dögum síðar er aftur kominn hópur til að mótmæla og þá er fyrst og fremst verið að mótmæla aðgerðarleysi þeirra manna og kvenna sem aðgerðarhóparnir 2007-2008 komu til valda.
Enn er krafan hin sama kosningar.
En hverju skiluð kosningarnar 2008 okkur.
Við fengum enn óhæfari ríkisstjórn sem ekkert hefur gert til bjargar heimilum í landinu, ríkisstjórn sem hefur sett sérgæluverkefni á oddinn.
Í þessari stöðu er allt betra en kosningar.
![]() |
Skíthræddir við nýtt framboð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |