Enn er von............

Svo bregðast krosstré sem fauskar.

Fáar þjóðir eru jafnnákvæmar og þjóðverjar, þegar fjármál eru annarsvegar.

Fyrst það getur hent þjóðverja að klúðra fjárhaldsbókhaldi sínu, eru sterkar líkur til þess að svona klúður geti einnig átt sér stað á Íslandi.

Nú er bara að endurreikna stöðuna og athuga hvort ekki finnist einhversstaðar aurar sem ekki var vitað um.

Þar sem við erum ekki með Evru, þá verðum við bara að sætta okkur við 55 milljarðar krónur finnist.

Einhversstaðar liggur þjófstolið fé. Og ekki ólíklegt að prófessor Þorvaldur Gylfason gæti fundið það ef hann tjáir sig um samtal sitt við bankastjóra Seðlabankans, eins og sjá má hér.


mbl.is 55 milljarða reiknivilla í Þýskalandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Nákvæmlega hvar er þýfið? Hér var heilt kerfi tæmt og ekki hefur fundist svo mikið sem ein króna af því sem hvarf!

Sigurður Haraldsson, 30.10.2011 kl. 22:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband