Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Geir fyrir dóm

Þau hljóta að bíða með eftirvæntingu stjórnarliðarnir að dómur falli, niðurstaðan gæti vakið blendnar tilfinningar.

Ef dómur fellur Geir í óhag gæti þetta verið upphaf að galdrabrennum eða rannsóknarrétti í anda miðaldanna.

Ekki er víst að allar aðgerðir núverandi stjórnarliða þoli nánari skoðun og er ég sannfærður um að margt hefði mátt gera öðruvísi á þessum tæpum 3 árum sem hin tæra vinstri stjórn hefur setið.

Enn eru margir í svipaðri eða jafnvel verri stöðu en þau voru um og uppúr áramótunum 2008-2009.

Gjaldþrotum hefur fjölgað, fólk er að missa ævisparnaðinn, flótti úr landinu er farinn að hafa alvarlegar afleiðingar fyrir framtíð landsins, atvinnuleysi eykst og margir farnir að síga á seinnihlutann í bótakerfinu og síðast en ekki síst hafa margir fallið fyrir eigin hendi, en Ísland er komið á toppinn í þeim efnum.

Á meðan leika stjórnarliðar í sandkassaleik þar sem sumir vilja verða heimsborgarar meðan hinir vilja leika sér við leggi og skeljar, og einn er orðinn stríðsherra þar sem loftárásir á saklausa íbúa eru rædd eins og ekkert sé sjálfsagðara en að drepa fólk, jafnvel hefur hann stutt hausaveiðar þar sem fé er lagt til, eins  og var í villta vestrinu "Dead or alive"

Í uppbyggingarmálum hefur hver höndin verið uppi á móti annarri og myndlíkingin "græn atvinna"   nær ekki til erlendra fjárfesta ef þeir eru ekki með sama lit og íslendingar eða augun eitthvað skásettari.


mbl.is Landsdómur kemur saman á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísland til sölu

veit Ögmundur af þessu?
mbl.is Salan á Iceland að hefjast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

að lífið sé skjálfandi lítið gras......

........en allir vita hver örlög fær sú urt sem að hvergi í vætu nær. Skjaldborg heimillanna er ekki risin af grunni þrátt fyrir að 3 ár séu að verða frá hruni bankanna. Áhugi ráðmanna er á allt öðru sviði


mbl.is Hrina uppboða í næstu viku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæpsamlegt atferli forsætisráðherra Írlands?

ég reyndi að fletta því upp hversu margir ráðherrar í írsku stjórninni hefðu lent í fangelsi vegna þess en fann ekki. upplýsingar eru vel þegnar


mbl.is Eyddu stórfé í hrunveislur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

mismunandi skoðanir

Ólafur Ragnar sver sig í ætt gamalla sjómanna vestan af fjörðum og lætur byr ráða til að ná góðri lendingu

Svona er þetta Úffi minn

Það hefur lengi loðað við dani, svía og norðmenn að vera rasistar. Danir voru lengi að fyrirgefa okkur íslendingum að við skyldum hafa svikið þá, meðan þeir vorum hernumin þjóð.

Þó Danir séu upp til hópa vingjarnlegir þá er stutt í vanvirðingu þeirra á því fólki sem þeim finnst vera annarflokks þjóðir, og má þar nefna álit þeirra á nýlendubúum þeirra, nágrönnum okkar í austri og vestri.

Danir voru á sínum tíma afkastamestir í þrælaflutningum af öllum þeim þjóðum sem slíkt stunduðu. Það var ekki fyrr en Bretar hótuðu þeim vopnavaldi  að þeir drógu úr þrælaflutningum til BN en fluttu samt ógrynni af þrælum til sykur plantekra sinna í Karíbahafinu.

Enn þann dag í dag skilgreina Danir frjálsar og ófrjálsar þjóðir með orðunum "paa" og "i", þar sem "paa" þýðir ófrjáls, sbr "paa Grönland" en "i Island" sem var alltaf fyrir 1950 "paa Island".

Kynþáttastríð þeirra á Nörrebro, sem nú er að verða að gettói, ber þess merki að grunnt er á milli Dana og innflytjenda.

Það er ekki bara á hinum norðurlöndunum sem rasismi er að festa rætur, heldur verðum við að gæta vel að okkur að lenda ekki í sömu gryfju. Atvinnuleysi og vaxandi fátækt eru gróðrarstíur fyrir alla afbrigðilega hegðun.

Ef við festumst í fátækt, er skammt í það að hér skapist samskonar ástand og við erum að verða vitni að í Svíþjóð, Danmörku og Noregi, þangað sem margir Íslendingar flytja til og ganga í þau störf sem Norðmenn telja sér ekki samboðin.

 

 


mbl.is Ellemann-Jensen vill nýja stefnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

sósíalismi og kommúnismi

Þessu var haldið fram á sínum tíma, Radíóamatörar víða um heim náðu sendingum og létu vita af því sem þar var að gerast, en auðvitað neituðu Rússar því. Enda sögðu þeir aldrei fyrirfram hvenær stæði til að skjóta geimförum á loft.

Um þetta leiti gerðu þeir einnig margar tilraunir með kjarnorkuvopn, sem og Bandaríkjamenn og Frakkar. Flestar þessar tilraunasprengingar voru sprengdar ofanjarðar og menguðu út frá sér meðal annars hér og féll til jarðar með úrkomu.

Okkur börnunum á þessum tíma var bannað að borða snjó af hættu við geislavirkni.

Rússarnir sögðu ekki heldur frá þessu, þar var allt upplýsingastreymi til almennings bannað, eins og annarsstaðar í ríkjum alþýðusósíalismans og kommúnista.


mbl.is Svartur dagur í Rússlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

pappírsfótur

Það getur vart verið annað í spilum Japana en að fella gengið, jafnvel um allt 50 %.

 Þetta myndi gagnast skuldsettum heimilum og fyrirtækjum á Íslandi betur en allar hugmyndir Steingríms og Jóhönnu. Annað í stöðunni hjá Japönum og þá þeim sjálfum til hjálpar væri að selja dollar fyrir gull.

 Að öllum líkindum mun verð á gulli fara hækkandi á næstunni og framtíðar undirstað gjaldmynta verði þá gullið.


mbl.is Efnahagur Japan „í biðstöðu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

kemur okkur ekki til góða

Það ætti að vera okkur Íslendingum gleðiefni að tunnan skuli vera að nálgast 80 dollara markið.

Enn samt er það þannig að þrátt fyrir lækkun olíuverðs og tiltölulega lágs gengis USD gagnvart krónunni þá sér þess ekki stað í verðlagningu hér á landi.

 


mbl.is Olíuverð á niðurleið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

enn ein neikvæða fréttin frá ESB

Þökk sé risanum á markaðinum að ekki skuli vera meiri meðal halli á viðskiptum. Þjóðverjar eru nánast einir um að halda uppi milliríkja viðskiptum innan ESB. Slagorðið kaupum innflutt frá áttunda áratugnum er nú tekið upp aftur í Þýskalandi, sem reyndar virkaði illa.

Þó má segja að flestar þjóðir innan ESB geti verið sjálfum sér nægar. Meðal innflutningsþörf ESB þjóða er um 12 %.

Hvernig skyldi staðan vera hér og batnar hún eða versnar ef við göngum í ESB.

Heimafenginn gróði hefur allatíð reynst happadrýgstur.

 


mbl.is Aukin vöruskiptahalli á evru-svæðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband