Steingrímur vill fara huldu höfði

Það er ekki að spyrja að hjálpseminni hjá Steingrími J. (verðum við ekki að fara að nefna hann Jaka). Maður sem alla tíð hefur verið á móti öllum og öllu, vill nú koma íslensku þjóðinni til hjálpar með leyni för til Noregs.

Ég hélt satt að segja að Steingrímur væri á móti öllu leynimakki og allt ætti að vera uppá borðum og gegnsætt. Það er greinilegt að leynd á aðeins við þegar hann á í hlut. Hins vegar er ég honum hjartanlega sammála að við eigum að lesa smáaletrið vandlega í nauðarsamningi við Alþjóða gjaldeyrissjóðinn og rasa ekki um ráð fram.

 


mbl.is Vildi leynilega sendinefnd til Noregs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ég sé nú ekkert athugavert við þetta. Steingrímur biður um dreifða ábyrgð og býður hjálp til að kanna möguleika án ábyrgðar eða yfirlýsinga. Leyndin var ekki gagnvart þjóð þarna heldur gagnvart IMF og þeim ránfuglum, sem um okkur sátu. Var hægt að finna leiðir til að komast undan klóm þeirra?  Var ábyrgt að vekja væntingar áður en fullreynt var?  Var ábyrgt að stofna slíku samkomulagi í hættu á meðan á því stóð?  Stundum er leynd nauðsyn og ég skil ekkert í þeim neikvæða söng, sem sífrar í tengslum við þessa frétt.

Jón Steinar Ragnarsson, 19.11.2008 kl. 11:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband