1.10.2010 | 03:05
Þjóðstjórn
Þjóðstjórn er stjórn allra flokka sem eiga þingmenn.
Utanþingstjórn er hinsvegar ríkisstjórn sem skipuð er mönnum utan þings, en verður samt að treysta á stuðning þeirra þingmanna sem kosnir hafa verið.
Alþingi í sandkassaleik | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Ólafur þarf að reka ríkisstjórnina og gefa þingmönnum hlé frá framkvæmdavaldinu næstu árin á meðan núverandi pólitíska stríð gengur yfir.
Geiri (IP-tala skráð) 1.10.2010 kl. 03:16
Hann hefur ekki það vald að geta það.
Guðmundur Paul, 1.10.2010 kl. 03:27
Segir hver?
Framkvæmdavaldið á Íslandi er í umboði forsetans.
Geiri (IP-tala skráð) 1.10.2010 kl. 06:29
Úr stjórnarskrá lýðveldisins Íslands:
24. gr. Forseti lýðveldisins getur rofið Alþingi, og skal þá stofnað til nýrra kosninga, áður en 45 dagar eru liðnir frá því er gert var kunnugt um þingrofið, enda komi Alþingi saman eigi síðar en tíu vikum eftir, að það var rofið. Alþingismenn skulu halda umboði sínu til kjördags.
Guðmundur Ásgeirsson, 1.10.2010 kl. 12:22
Úr stjórnarskrá lýðveldisins Íslands:
15. gr. Forsetinn skipar ráðherra og veitir þeim lausn. Hann ákveður tölu þeirra og skiptir störfum með þeim.
20. gr. Forseti lýðveldisins veitir þau embætti, er lög mæla. ...
Forseti getur vikið þeim frá embætti, er hann hefur veitt það.
Guðmundur Ásgeirsson, 1.10.2010 kl. 12:25
Einmitt.
Þó að það hafi verið hefð fyrir því að forsetinn sé ekki að skipta sér af þá breytir það ekki því að þetta er valdamikið embætti og hefur alltaf verið það.
Það er ekki af ástæðulausu að forsetinn gefur umboð eftir kosningar og að allir mæti upp á Bessastaði.
Geiri (IP-tala skráð) 2.10.2010 kl. 02:23
Sæll nafni var að leita að þessu mundi bara ekki hvar ég hafði séð það en hér kemur það:
Ragnhildur Helgadóttir, lagaprófessor
við Háskólann í Reykjavík,
segir alveg skýrt samkvæmt
stjórnarskránni að forseti beri ekki
ábyrgð á stjórnarathöfnum og að
hann láti ráðherra framkvæma vald
sitt. Nítjánda greinin kveði svo á um
að undirskrift forseta veiti ákvörðunum
aðeins gildi þegar ráðherra
ritar undir mál eða erindi með
honum. „Forseti getur því ekki rofið
þing nema ráðherra geri það með
honum,“ segir Ragnhildur.
Guðmundur Paul, 5.10.2010 kl. 19:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.