27.9.2010 | 05:24
fall er fararheill
Það á ekki af Vestamanneyingum að ganga í samgöngumálum þeirra.
Óvenju óblíð veðurskilyrði, hafa sett mark sitt á þetta nýja samgöngu mannvirki.
Vonandi fer þessum hörmungum brátt að linna og höfnin komist sem fyrst í samt lag. Þetta eru gríðarlegar bætur í samgöngumálum eyjanna.
Ég lenti sjálfur í því fyrir mörgum árum, að það tók Herjólf hátt í klukkutíma að leggjast að bryggju í Eyjum vegna mikils hafróts í höfninni.
Ekki veit ég hversu mikill peningur sparast á hverri ferð í Landeyjar miðað við ef siglt yrði til Þorlákshafnar.
Við megum ekki heldur gleyma því að þegar núverandi höfn var gerð í Þorlákshöfn var líka talað um kostnaðinn við þá gerð. Og höfnin var sú dýrasta sem þá hafði verið gerð.
Ferð Herjólfs fellur niður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.