Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
9.10.2010 | 04:09
fátt er svo með öllu illt
Það þarf sérstaklega að taka það fram við slíkan "glæfra akstur" að maðurinn var ekki undir áhrifum fíkniefna eða áfengis.
Ég var fyrir nokkru tekinn fyrir glæfraakstur, mældist á 109 km, ekki var tekið fram hvort ég hafi verið undir áhrifum eða ekki, og vil ég því taka það fram að svo var ekki.
Fyrir þennan glæp minn fékk ég 30 þúsund króna sekt og til vara 2 daga í fangelsi.
Ekki ætla ég að afsaka þessa glæpastarfsemi mína og vil því taka út fulla refsingu frekar en að þiggja sátt.
En það er víst ekki hægt í bili, hins vegar varð þessi glæpur minn til að ýta af stað nýrri umræðu um fangelsismál.
![]() |
Tekinn á 137 km hraða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.10.2010 | 03:56
góð frétt
Svona fréttir hljóta að veita mörgum nýja von
![]() |
Steig upp úr hjólastólnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.10.2010 | 03:49
Í hvers umboði bullarðu Össur
Ég er ansi hræddur um að Össur hafi rangtúlkað niðurstöður úr þjóðaratkvæðagreiðslunni.
Ég hélt að það hefði verið kristaltær niðurstaða að Íslendingar ætluðu ekki að borga.
Hvað er maðurinn að bulla úti í heimi.
Komdu þér aftur heim Össur og bullaðu hér, það tekur hvort eð er enginn mark á þér á Íslandi, en einhver gæti haldið þarna úti að þú værir að tala fyrir hönd þjóðarinnar.
Ég vil minna þig á að svilkona þín sagði hátt og skýrt að þið væruð ekki þjóðin.
![]() |
Aldrei spurning um Icesave |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.10.2010 | 16:47
Bjarni með þetta á hreinu.........
.................. það er bara verst að Bjarni skyldi klúðra tölvupóstinum sínum. Þarna fer maður sem sem skilur að grunnur að góðu samfélagi er atvinna og heilsa en ekki ESB innganga eða listadekur.
Það sannast á honum að bókvitið hefur verið sett í askinn hans.
Ef við höfum ekki atvinnu eða heilsu, þá verður smá saman óþarfi að breikka vegi og hvað þá að opna gáttina til Evrópusamstarfs.
![]() |
Niðurskurðurinn er óþolandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.10.2010 | 16:36
úr torfkofum í torfkofa
Hvernig væri að fara alveg nýja leið (sú leið er auðvitað ekki ný) að byggja eitthvað upp í stað þess að skera niður.
Nú halda sjálfsagt allir að þetta sé eitthvað íhaldsráð, en svo er nú ekki.
Einar Olgeirsson einn af stofnendum Kommúnistaflokks Íslands og síðar Alþýðubandalagsins sem er forveri Samfylkingarinnar var ekki lengi að sannfæra erkióvin sinn í pólitíkinni Ólaf Thors að uppbygging í stað niðurrifs væri vænlegast til árangurs í baráttunni við atvinnuleysi.
Þessir tveir heiðursmenn ásamt Brynjólfi Bjarnasyni lögð grunn að nútíma Íslandi.
![]() |
Skoða aðrar niðurskurðarleiðir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.10.2010 | 16:22
Já, ráðherra
Það er nú gott og blessað, en hver velur nefndina, er hún hæf.
Þyrfti ekki hæfnisnefnd að fara yfir það hvort sú nefnd sé hæf.
Ráðuneytisstjórar ættu að vera ráðnir af ráðherra og fylgja honum úr ráðuneytinu um leið og hann yfir gefur það.
![]() |
Hæfnisnefnd velur ráðuneytisstjóra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.10.2010 | 16:18
Flökkustofnar mannlegir og velsyndir
Þetta sýnir það svart á hvítu hversu vinveittir þeir eru okkur í Brussel. Jón stattu á þínu.
ESB hefur lýst því yfir að flökkustofnar (mannlegir) teljist til íbúa hvar sem þeir eru og hversvegna ekki frændur okkar í sjónum (Darwin)
![]() |
Ég lýsi furðu yfir þessu hótunarbréfi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.10.2010 | 16:12
það þurfti bara eitt egg
![]() |
Lausn við skuldavanda í næstu viku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.10.2010 | 16:08
ekki gera ekki neitt, kjörorð Intrum
![]() |
Vill almenna lækkun skulda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.10.2010 | 09:26
kvenfrelsi og jafnrétti
það er ansi langt gengið að fólki, þegar það bugast orðið opinberlega vegna þess ástands sem er að skapast í atvinnumálum heilla byggðarlaga.
Heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni eru oft á tíðum kjarni atvinnulífsins, þar vinna að meirihluta konur.
Það þótti ekki karlmennskulegt hér áður fyrr að veitast að konum.
Þeir sem stjórna þjóðfélaginu í dag eru hinir sömu og hvöttu konur til að fylkja sér á vinnu markaðinn. Þetta eru sama fólkið og hrópar á torgum um kvenfrelsi, jafnrétti og bræðralag
![]() |
Fólk fór að gráta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |