Jómfrúarferðin 1912

Á meðan Bretar og helstu fjármálablöð heimsins spá hruni í ríkjum ESB, heldur ríkisstjórn Ísland ótrauð áfram að koma Íslandi inn í þann Hrunadans.

Ríkisstjórnar meirihlutinn er það tæpur að maður hefði haldið að Jóhanna og samfylkingin myndu reyna að hægja á gífuryrðum um samstarfsmenn sína.

Staðan í ríkisstjórnarsamstarfinu er ámóta og var um áramótin 2008-9. Samfylkingin notar alltaf sömu taktana, byrjar að rægja niður samstarfsmenn sem upphaf að stjórnarslitum.

Ef fréttir Financial Times eru á rökum reistar, þá er aðildarumsóknin hrein fásinna.

Það má líkja þessu ferli á svipaðan hátt og jómfrúarferð Titanic 1912. Ríkisstjórnin fagnaði ferðinni með jómfrúnni, allt var látið líta sem glæsilegast út og ferðin var farin með lúðrablæstri og trumbuslætti.

En glamúrinn var aðeins á yfirborðinu, við stjórnvölinn var óhæfur kafteinn sem ekki lét sér segjast þó válynd veður væru í kortunum og tók ekki mark á samstarfsmönnum sem skynjuðu hættuna. En í lestinni við lélegan aðbúnað voru svo farþegar sem í engu réðu um örlög sín. Fólki hafði verið talin trú um að farið væri hið traustasta og almenningi til hagsbóta.

En á Íslandi voru hinsvegar áhafnarmeðlimir sem ekki vildu taka þátt í þessari glæfrasiglingu og farþegar sem stukku frá borði í stað þess að bíða örlaga sinna á varasömu Norður-Atlantshafinu.

Þrátt fyrir að útlitið sé slæmt og veðurspár næstu daga séu slæmar, þá heldur kafteinninn ótrauður áfram á fullri ferð. Ekki hvarflar að henni eitt andartak að senda boð til vélstjórans um að hægja á vélinni eða jafnvel stöðva hana á meðan aðstæður verði kannaðar.

Fyrsti stýrimaður, situr á sama tíma íbygginn í brúnni. Hann veit að hvernig sem fer þá getur hann alltaf logið sig útúr ábyrgðinni og stuðningur bakhjarla hans breytist ekkert. Hann skal njóta ferðarinnar á meðan á henni stendur, það er ekki víst að annað tækifæri gefist.

Þessi nútíma Titanic ferð stefnir í sama hamfarslysið og ferðin sem farin var fyrir 100 árum.

Það getur ekkert bjargað fleyinu nema uppreisn um borð og stjórarnir annaðhvort kjöldregnir eð hengdir uppí hæsta reiða.


mbl.is Varað við mögulegu hruni evrusvæðisins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband