4.9.2011 | 11:57
Geir fyrir dóm
Þau hljóta að bíða með eftirvæntingu stjórnarliðarnir að dómur falli, niðurstaðan gæti vakið blendnar tilfinningar.
Ef dómur fellur Geir í óhag gæti þetta verið upphaf að galdrabrennum eða rannsóknarrétti í anda miðaldanna.
Ekki er víst að allar aðgerðir núverandi stjórnarliða þoli nánari skoðun og er ég sannfærður um að margt hefði mátt gera öðruvísi á þessum tæpum 3 árum sem hin tæra vinstri stjórn hefur setið.
Enn eru margir í svipaðri eða jafnvel verri stöðu en þau voru um og uppúr áramótunum 2008-2009.
Gjaldþrotum hefur fjölgað, fólk er að missa ævisparnaðinn, flótti úr landinu er farinn að hafa alvarlegar afleiðingar fyrir framtíð landsins, atvinnuleysi eykst og margir farnir að síga á seinnihlutann í bótakerfinu og síðast en ekki síst hafa margir fallið fyrir eigin hendi, en Ísland er komið á toppinn í þeim efnum.
Á meðan leika stjórnarliðar í sandkassaleik þar sem sumir vilja verða heimsborgarar meðan hinir vilja leika sér við leggi og skeljar, og einn er orðinn stríðsherra þar sem loftárásir á saklausa íbúa eru rædd eins og ekkert sé sjálfsagðara en að drepa fólk, jafnvel hefur hann stutt hausaveiðar þar sem fé er lagt til, eins og var í villta vestrinu "Dead or alive"
Í uppbyggingarmálum hefur hver höndin verið uppi á móti annarri og myndlíkingin "græn atvinna" nær ekki til erlendra fjárfesta ef þeir eru ekki með sama lit og íslendingar eða augun eitthvað skásettari.
Landsdómur kemur saman á morgun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.