21.9.2010 | 12:59
Flóttaleið
Loksins eru vinstri grænir búnir að finna flóttaleið útúr vinstristjórninni. Nú er bara að sjá hvað hádegisfundirnir á Alþingi skila.
Ég hef ekki trúa á því að Jóhanna rjúfi þing, því þá er farinn síðasti möguleiki kratanna að komast í ESB. Vinstri Grænir eru ekki heldur tilbúnir að yfirgefa stólana, en gætu freistast til að leita ásjár hjá Sjálfstæðisflokki.
Og enginn flokkur er tilbúinn í kosningar, enda væri það óráðlegt. Þá er bara eftir þjóðstjórn eða utanþingsstjórn, en utanþingsstjórn er líklegast ekki inni í myndinni.
Þjóðstjórn yrði hins vegar að leggja niður allar persónulegar væringar og einhenda sér í það sem hefði átt að gera fyrir 18 mánuðum síðan. En geta þingmennirnir gert það
Þörf á að endurnýja umboð þingmanna? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:00 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.