Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

ESB, vinir í raun?

Jæja þá ætti ekki að vera neitt því til fyrirstöðu að við fáum lán frá Alþjóða gjaldeyrissjóðnum, og í framhaldi að ganga inní ESB.

Þar sitja núna "vinir" okkar og fagna því að að afkomendur víkinganna og framtíðar afkomendur útrásarvíkinga komi skríðandi eins og lúbarðir hundar og sleiki vöndinn. Ætli þeir hlæi ekki að okkur sem beinum öllum okkar mótmælum að ríkisstjórninni og Davíð í stað þess að mótmæla "fjármála ofurhugunum" sem komu okkur í þessa klípu.

En getum við ekki kennt okkur sjálfum um hvernig er komið fyrir þjóðinni? Í góðærinu sem nú er liðið lagði ríkisstjórnin á það áherslu að greiða niður skuldir á meðan einstaklingar og fyrirtæki söfnuðu skuldum, hærri yfirdráttarlán, glæsilegri eignir, aukinn innflutning og ferðalög að ógleymdum 100% gjaldeyrislán sem notuð voru að hluta til aukinnar neyslu og tóku sér flugfar með einkaþotum auðkýfinganna.

Dóttir eins af fyrrverandi pólitísku sendiherranna, sagði að mikil spilling væri í stjórnmálum á Íslandi, ekki veit ég hvað satt er í því, en treysti því að hún tali af eigin reynslu og foreldranna sem eru af eðalkrata ættum og þekkja því vel til spillingar í stjórnkerfinu.


ESB og evran, er það málið

Verður lýðræðið tryggt með inngöngu í ESB ? Hverju fáum við ráðið? ESB hefur hingað til gefið út tilskipanir sem aðildarþjóðir hafa þurft að innleiða og einnig við sem erum í EES. Þessar tilskipanir hafa flestar verið fáránlegar og virðist sem eingöngu sé verið að veita býrókrötum störf og að gera þá merkilega. Nýjasta vitleysan er afnám gúrku útlitsins sem sett var á fyrir nokkrum árum. Í dag mótmæla menn fyrir framan Alþingishúsið og krefjast þess að kosningar verði sem fyrst, að Davíð verði settur af sem seðlabankastjóri og að við göngum í ESB og tökum upp evruna. Einn af ræðumönnum taldi að rafræn kosning um allt sem skipti þjóðina máli væri það sem koma skildi. Þannig er það bara aldeilis ekki hjá skriffinnsku embættunum í ESB. Líkast til hefðum við ekki lent svona illa í þessari banka kreppu ef við hefðum sleppt því að ganga í EES á sínum tíma.

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband